Aðeins of seint...

Mér finnst skrítið að fólk skuli stökkva upp á nef sér yfir svona fréttum.

Fólk sem ákveður að sniðganga fyrirtæki eins og Google út af því að það óttast að Google sé að verða "stóri bróðir" eða vill ekki snerta Facebook með 10 metra priki því það óttast að fyrirtæki úti í heimi komist yfir gögnin sín er í lang flestum tilfellum fólk sem notar séreignahugbúnað eins og Microsoft Windows eða Mac OS X stýrikerfið. Internet-vafra eins og Internet Explorer eða Safari.

Það fær ENGINN að skoða undir húddið á hugbúnaðinum sem flestir, einstaklingar og fyrirtæki, keyra allan daginn, alla daga. Stýrikerfi eins og Microsoft Windows og Mac OS X gera allt sem höfundur stýrikerfissins vill að það geri. Það getur njósnað um þig, það getur breytt eiginleikum sínum frá þeim eiginleikum sem hugbúnaðurinn hafði þegar notandinn keypti hann (t.d. með þvinguðum sjálfvirkum uppfærslum, bæði í Mac OS X og Windows 7) .

Hvernig þætti fólki að keyra um á bílum sem væru þess eðlis að vélarhlífin væri soðin föst? Að fólk ætti yfir höfði sér lögsóknir frá einhverjum af stærstu fyrirtækjum heims ef það reyndi að skoða undir hana til að afla sér upplýsinga. Það gæti ekki einusinni borgað vini sínum, sem gæti verið bifvélavirki eða vélaverkfræðingur, fyrir að skoða undir vélarhlífina?

Á meðan fólk lætur séreignahugbúnaðarfyrirtækin stjórna lífi sínu, líf sem fólk í eyðir meira og meira fyrir framan tölvuskjá, get ég því miður ekki tekið mark á svona vænissýki.

Ég er ekki að "vernda" Google, en hin fyrirtækin hafa það forskot að hreinn meirihluti notenda notar lokaða séreignahugbúnaðinn þeirra allan daginn alla daga. BÆÐI þegar viðkomandi heimsækir efni þar sem Google getur aflað upplýsinga, sem og allar aðrar síður.

Svo ég taki vænissýkina upp á nýtt stig: Ég mundi ALDREI treysta stýrikerfi sem er séreignahugbúnaður til að stjórna samskiptum við innbyggðu vefmyndavélina í fartölvunni minni eða við innbygða hljóðnemann. Ég get ekki vitað hvenær hún tekur myndir eða tekur upp hljóð né hvert stýrikerfið ákveður að senda efnið. Kannski kom þessi "fídus" í sjálfvirkri uppfærslu frá stýrikerfisrisanum sem ákveður fyrir mig hvað hugbúnaðurinn má gera sem ég keyri á tölvunni minni?

Frjáls hugbúnaður virðir frelsi notandans til taka þátt í samfélagi manna og frelsið til að læra um heiminn í þeim tilgangi að bæta hann, sjálfum sér og öðrum til bóta:

Richard Stallman stofnaði Free Software Foundation árið 1985:

 

Mér finnst þetta annars léleg þýðing á frétt, nema upprunalega fréttin hafi verið svona bjánaleg líka. Ég get allavega ekki séð hvernig hægt er að taka ljósmyndir af þráðlausum staðarnetum og setja þær í StreetView. Þráðlaus net vinna á 2.4 GHz sem er LANGT fyrir neðan sjáanlegar tíðnir rafsegulsviðs (ljós).


mbl.is Vilja koma böndum á Google
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Þór Sigurðsson

Mig langar að leiðrétta þig ögn þarna, því þótt ég vildi gjarnan draga í sama taum, þá ferðu með rangt mál, að minnsta kosti hvað varðar Mac OS X.

Það er nefnilega þannig að Darwin (BSD grunnurinn að Mac OS X), ásamt flestum grunnþjónustum eru opinn hugbúnaður og fáanegur til niðurhals á http://opensource.apple.com .

Það er hinsvegar húddið sjálft (Finder og i-forritin) sem eru harðlæst og lokuð.

Einnig er ekkert til í Mac OS X sem heitir þvingaðar uppfærslur. Viljirðu ekki uppfæra, þá er það algerlega undir þér komið.

Og svo égkomi nú með svolítið fullkomlega sanngjarnt skot - hvenær lastu (og skildir) kernel driverinn fyrir vefmyndavélina, innbyggða USB höbbinn OG g-hvaðsemþúnotarsemclient línu fyrir línu? Aldrei geri ég fastlega ráð fyrir, alveg eins og 99.9999% allra þeirra sem nota (F)OSS stýrikerfi.

Hinsvegar, hvað fréttina sjálfa varðar, þá er það rétta að þarna ef verið að vista SSID og MAC á access punktunum í þráðlausu netunum ásamt GPS hniti hvar þessi tilteknu SSID fundust og styrkleika, þannig að hægt sé að nota þríhyrningamiðun á n-mörgum SSIDum til að staðsetja þig í Google Maps miðað við hvaða þráðlausu netum þú nærð sambandi við. Þetta er aðferðin sem 1-gen og 2-gen iPhone notar til staðsetningar í Google maps. - Að sjálfsögðu vita gagnslaus fítus ef þú ert með innbyggt GPS.

„Að taka mynd(ir) af þráðlausu netunum“ er orðafar MBL manna þegar þeir ætla að segja "ég skil ekki rassgat hvað átt er við, og babbla því bara eitthvað út í loftið. Flestir bjánarnir sem lesa þessa frétt halda að ég viti hvað ég er að tala um, bara ef ég sletti nógu miklu tæknibabbli“

Þór Sigurðsson, 25.5.2010 kl. 16:12

2 Smámynd: Jóhann Friðriksson

Rétt hjá þér Þór, fór aðeins frammúr mér varðandi Darwin kjarnann.

Það sem Richard Stallman hefur þó aftur og aftur bent á er að "stýrikerfi" er ekki bara kjarni. Stýrikerfi er kjarninn OG notandahugbúnaðurinn. Þessvegna tala ég um GNU/Linux stýrikerfið en ekki bara "Linux". Ég þarf miklu meira en bara kjarna til að geta notað tölvuna mína. Notandahugbúnaðurinn á Mac OS X er því ófrjáls og því tek ég þann pólinn í hæðina að stýrikerfið sé ófrjálst.

Í raun horfi ég á "þvingaðar" uppfærslur með frá tveimur sjónarhornum. Annarsvegar getur notandinn verið bókstaflega neyddur til að uppfæra því stýrikerfið neitar að þóknast honum án þess, en hitt sjónarhornið tel ég vera þá stöðu þegar notandinn "verður" að uppfæra til dæmis vegna öryggisholu sem hefur fundist. Frjáls stýrikerfi leyfa notandanum að uppfæra aðeins þá hugbúnaðarpakka sem við á. Og þá einnig án þess að neyða notandann til að setja upp viðbótarhugbúnað svo hann geti uppfært (lesist: notandinn getur uppfært án þess að vera neyddur til að setja upp Windows Genuine Advantage).

Varðandi myndavélarekilinn, þá hef ég að sjálfsögðu ekki (frekar en nokkur annar held ég að ég get fullyrt) skoðað allan kóða frá myndvavélarekli og niður í implementation á glibc sem er þýtt fyrir þá vélartegund sem ég nota hverju sinni. En hinsvegar langar mig að svara því til að ég hef átt við myndavéladriverinn sjálfan í tengslum við það sem ég hef skrifað af tölvusjónar (e. computer vision) hugbúnaði fyrir embedded platform sem keyrir Linux (ég smíða róbóta).

 Ég gæti haft þetta lengra, en læt hér staðar numið.

Jóhann Friðriksson, 28.5.2010 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Kæfusafi

Höfundur

Jóhann Friðriksson
Jóhann Friðriksson
Tölvunarfræðingur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Buckminster Fuller

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband